Prófkjör flokkanna

Merkileg þessi prófkjör sem fram hafa farið nú um helgina. Óbreyttum þingmönnum flokkanna var sparkað en frontarnir halda sínu. Þjóðin virðist vera að refsa þeim sem minnstu áhrif hafa innan flokkseigendaklíkunnar. En það sem er merkilegast er þátttakan í þessum prófkjörum er hversu léleg þátttakan er. Af 20 þúsund kjósendum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kjósa aðeins rúm átta þúsund. Víða um land er þátttakan svipuð eða verri hlutfallslega. Hvað skyldi valda því? Er þetta aðferðin sem almenningur notar til að sýna óánægju sína? Ég held ekki en ég átta mig samt ekki á hvað veldur. Ef almenningur er óánægður ber honum að mæta á kjörstað og hafa áhrif á hverjir komast til áhrifa fyrir flokkana


Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, þann 16. nóvember, síðan árið 1996 samkvæmt tillögu menntamálaráðherra. Fyrir nokkrum árum tóku sig saman nokkrir unnendur skáldsins og lögðu drög að stofnun félags sem hefði það að markmiði að eignast Hraun í Öxnadal, þar sem skáldið ólst upp að hluta. Allt gekk eftir og var hluti jarðarinnar friðlýstur af þáverandi umhverfisráðherra, Jónínu Bjartmars, 10. maí 2007. Á Hrauni hefur verið komið upp minningarstofu um Jónas þar sem brugðið er upp myndum úr ævi hans og lýst áhrifum hans á íslenska menningu og sögu. Þar hefur einnig verið innréttuð íbúð fyrir skáld, rithöfunda og fræðimenn og opnaður fólkvangur og útivistarsvæði fyrir almenning. Enginn efast um að Jónas var eitt magnaðasta skáld landsins fyrr og síðar og þar sem mér er ómögulegt að gera upp á milli ljóða skáldsins enda ég þennan pistil á ljóði eftir fyrsta ráðherra landsins, Hannesi Hafstein, um Jónas og heimastöðvar hans Hraun í Öxnadal.

Þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla"
lék í ljósi sólar,
lærði hörpu að stilla
hann sem kveða kunni
kvæðin ljúfu, þýðu,
skáld í muna og munni,
mögur sveitablíðu.


Verðtygging

Hvað þýðir verðtrygging?  Verðtrygging þýðir það að sá sem lánar peninga fær þá alltaf til baka án þess að skerðing verði á gildi þeirra fjármuna sem hann lánaði í upphafi. Hann fær alltaf vexti umfram þær verðbætur sem vísitala neysluveðrð leggur honum til. Og hvað er vísitala neysluverðs? Það  er sá mælikvarði sem ríkisstjórnin leggu til hliðsjónar þegar reiknað er er út hver er neysla okkar, í hvað við erum að eyða peningum okkar. Burt séð frá allri  ábyrgð stjórnvalda hvað varðar stöðu okkar í dag skulum við ekki gleyma því að, þrátt fyrir að flestir segi að þeir hafi ekki tekið þátt í góðærinu þá er það ekki satt. Allir landsmenn tóku þátt á vissan hátt. Fólk í t.d. byggingarbransanum hefur aldrei haft eins mikið að gera og það fólk tók fegins hendi við allri þeirri vinnu sem í boði var þrátt fyrir að hún væri langt umfram það sem menn töldu eðlilegt. Ágætur vinur minn sem er múrari sem ég hitti reglulega í laugunum sagði mér að hann væri nú loksins komin í þá stöðu að slappa aðeins af og hafa það þokkalegt sem maður. Vinnan á undanförnum mánuðum og árum hafi ekki verið eðlileg en samt tók hann allri þeirri vinna sem bauðst því það þýddi einfaldlega tekjur fyrir hann sem voru langt umfram það sem hann hafði áður þekkt. En snúum okkur aftur að verðtyggingunni. Margir vilja frysta hana um tíma þar sem það komi skuldurum til góða en leiðir til taps þeirra (sem alltaf hafa haft sitt á þurru þ.e lánveitendur) En bíðum aðeins við. Setjum upp dæmi: Jón Jónsson á 100 kr. í banka á verðtryggðum reikningi ( og það er fjöldi fólks sem á smá peninga og hefur geymt þá á verðtryggðum reikningum í mörg ár)Þegar hann lagið 100 kallinn inn kostaði 1 lítra af mjólk 100 kr. Þá er ákveðið að taka vísitöluna úr sambandi og frysta verðbæturnar í, segjum í 6 mánuði. Á meðan hækka allar nauðsynjar og líterinn af mjólk hækkar úr 100 kr. í 120 kr. Peningarnir hans Jóns hafa því rýrnar á þessu tímabili ( og það hefði þess vegna getað verið einn dagur) Sem sagt Jón Jónsson sem átti 100. kall á verðtryggum reikningi fær áfram 100 kall + 4 til 5% vexti af innlögn sinni meðan mjólkurlítrinn hækkar um 20%. Er þetta sanngjarnt til þess að við skuldarar fáum lægri vexti af okkar skuldum í nokkra mánuði? Nei, til þess að gera þetta framkvæmanlegt þarf að frysta verðlag í sama tíma og hvernig ætlar ríkisstjórnin að standa að því. Ég bjó í Noregi í 4 ár frá 1976 til 1980 og þá var verðstöðvun í landinu. Þvottavélin sem ég þurfti að kaupa i upphafi kostaði 100 NKR. minna þegar ég flutti heim í bullandi verðbólgu árið 1980 en meira um það síðar.

Laugardagskvöld

Loksins fann ég efni sem mig langar að skrifa um (a.m.k. núna) en það er þátturinn sem var að ljúka á RÚV sem nefnist Laugardagskvöld. Þessi þáttur hafði allt upp á bjóða, skemmtilegheit, óvænta gesti, tilfinningar og hjartaslátt. Gestur kvöldsins,utan við það er að vera gullfalleg og góður tónlistamaður, þá hefur hún svo mikið að gefa. Þátturinn fór á skrið þegar Jogvan mætti og ég tala nú ekki um þegar systur Eyvörar mættu þó ég tali ekki um þegar pabbi hennar mætti. Svona á að byggja upp þátt , hæg og hljóðlát í byrjun og síðan magnast spennan og endar í hápunkti þar sem allir fallast í faðm end of the story. Ég þakka fyrir skemmtilega kvöldstund.


Það er nú eða aldrei

Ég hef lengi verið með þessa bloggsíðu í gangi en verið arfaslakur við að færa hugleiðingar mínar inn á síðuna. En nú er sem sagt tímabært að hefjast handa. Annaðhvort heldur maður úti einhverju röfli á síðunni eða lokar henni. Ég er hinsvegar ekkert sérlega vel að mér um hvernig þetta kerfi virkar og langt í land að síðan verði fullsköpuð. Ég þarf að þreifa mig áfram og fá upplýsingar um eitt og annað sem ég hef ekki hugmynd um hvernig á að setja inn og hvort maður má t.d. setja aðra bloggara inn sem bloggvini án þeirra heimildar sem og vitna í hvaðeina með tengingu á viðkomandi.  Vonandi er einhver þarna úti sem les þetta og getur leiðbeint mér því þótt það séu ágætar leiðbeiningar á blog.is er alltaf gott að geta spurt einhvern jöfnum höndum.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband